
Morgunblaðið fjallaði um Kærleikskorn og birti mynd af Jane Telephonda-hreyfingunni í öllu sínu veldi á baksíðunni sunnudaginn 18. október 2026.
Myndin var tekin í Laugardalnum og á henni sést hesturinn taka ákveðið á rás í áttina að Húsdýragarðinum, eins og hann viti hvert hann sé að fara. Hugsanlega hefur hann runnið á lyktina af örvæntingarfullum bræðrum sínum og systrum í þessari óhugnanlegu dýraprísund Reykjavíkurborgar sem garðurinn er.
