• Home
  • News
  • Music
  • Store
    • T-shirts
    • Sweatshirts
    • Hoodies
    • Hats
    • Posters
    • Home & Living
  • Shows
  • Home
  • News
  • Music
  • Store
    • T-shirts
    • Sweatshirts
    • Hoodies
    • Hats
    • Posters
    • Home & Living
  • Shows

Jane Telephonda

Jane Telephonda News

Hreyfingin á baksíðu Morgunblaðsins 

Morgunblaðið fjallaði um Kærleikskorn og birti mynd af Jane Telephonda-hreyfingunni í öllu sínu veldi á baksíðunni sunnudaginn 18. október 2026.

Myndin var tekin í Laugardalnum og á henni sést hesturinn taka ákveðið á rás í áttina að Húsdýragarðinum, eins og hann viti hvert hann sé að fara. Hugsanlega hefur hann runnið á lyktina af örvæntingarfullum bræðrum sínum og systrum í þessari óhugnanlegu dýraprísund Reykjavíkurborgar sem garðurinn er.

10/19/2026

  • Leave a comment
  • Share
    Hreyfingin á baksíðu Morgunblaðsins

    Share link

in Fréttir

Kærleikskorn komið út! 

Önnur platan okkar á árinu 2026, Kærleikskorn, er komin út.

Á henni eru 16 lög af Boson of Love og We Are the Music, í glænýjum íslenskum búningi. Þar með má segja að íslenskuvæðing Jane Telephonda-hreyfingarinnar sé fullkomnuð, eða því sem næst.

Nýju textarnir eru eftir Albert Þorbergsson gítarleikara (Kærleikskorn, Hátt á lofti, Ljósadýr, Ég óttast aldrei og Hátt látt' í þér heyra), Ásdísi Rósu Þórðardóttur söngkonu (Beiskjan, Líf er ást), Grétar Má Ólafsson hljómborðsleikara (Veiðiferð, Prestakall), Hólmstein Inga Halldórsson trommuleikara (Horfðu í spegilinn, Umlukin ljósinu), Pétur Þór Sigurðsson gítarleikara (Skrekkurinn), Rafn Jóhannesson píanóleikara (Sleppum takinu) og Ívar Pál Jónsson gítarleikara (Komdu með mér, Já Rósa, Senefelderplatz).

Lagalistinn Kærleikskorns:

  1. Kærleikskorn (Boson of Love)
  2. Komdu með mér (Come With Me)
  3. Horfðu í spegilinn (Love Will Make You Whole)
  4. Umlukin ljósinu (Into the Light We Go)
  5. Já Rósa (Dear Rosa)
  6. Hátt á lofti (From the Rooftop)
  7. Skrekkurinn (Weight of Flowers)
  8. Senefelderplatz
  9. Beiskjan (Transmuted Saltness)
  10. Veiðiferð (Chicken in the Sky)
  11. Ljósadýr (Leather Unicorn)
  12. Sleppum takinu (We Are the Music)
  13. Ég óttast aldrei (No Reason)
  14. Líf er ást (Life Is Love)
  15. Prestakall (Rabbit in the Underground)
  16. Hátt látt' í þér heyra (Sing from the Mountain)

Hér er platan á Spotify.
 

10/08/2026

  • Leave a comment
  • Share
    Kærleikskorn komið út!

    Share link

in Fréttir

„Bowie-legar smíðar með dassi af Cardigans“ 

Sjálfur doktorinn, Arnar Eggert Thoroddsen, hefur kveðið upp dóm sinn um nýju plötuna okkar:

„Tónlistin er yndisleg en Ívar hefur mjög svo náttúrulega lagasmíðataug eins og ég hef vikið að. Má ég kalla þetta Bowie-legar smíðar með dassi af Cardigans? Já, ég held ég megi það alveg. Ívar er með sinn stíl, hann er nýbylgjuhundur, en innan þess skapalóns eru tilbrigði.

Sum lögin eru undurfurðuleg og sprellkennd, sum í klassísku varðeldaformi, önnur með ævintýralegum hljómagangi. Og sum stingandi falleg.“

Faglegri og endanlegri verður stimpillinn ekki, frá helsta fræðimanni tónlistarheimsins. Við þökkum auðmjúk fyrir okkur.

Dóminn í heild sinni má lesa hér.

05/26/2026

  • Leave a comment
  • Share
    „Bowie-legar smíðar með dassi af Cardigans“

    Share link

in Dómar

Enginn óður til gjöreyðingar 

Við greindum frá innri og ytri málefnum Jane Telephonda-hreyfingarinnar í viðtali við Orra Pál hjá Sunnudagsmogganum 12. apríl. Gefum Orra orðið:

„Það er enginn óður til gjöreyðingar á þessari plötu, vonandi frekar í hina áttina. Uppleggið hjá okkur er gleði; við erum að fagna lífinu, kærleikanum og voninni,“ segir Ívar Páll Jónsson, forsprakki indírokksveitarinnar Jane Telephonda, um plötuna Samhengið sem kom út í vikunni. Eiginkona hans, Ásdís Rósa Þórðardóttir, söngkona Jane Telephonda, tekur heilshugar undir þetta. Gleðin og vináttan hafi alltaf ráðið för við tónsköpun sveitarinnar. 

Þau segja lífið ekki þurfa að vera flókið. „Gerum eitthvað algjörlega frábært á hverjum degi og þá gerist eitthvað uppbyggilegt og gott,“ bætir Ívar Páll við og vísar þar í upphafslag plötunnar sem einmitt heitir Gerum eitthvað algjörlega frábært. Þar segir:

Gerum eitthvað algjörlega frábært,
fyrir aðra,
fyrir okkur,
fyrir börnin,
fyrir okkur sjálf,
fyrir heiminn
sem við eigum
því að lífið
kemur okkur þá
óforvarandis
í opna skjöldu

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni með því að smella á myndina hér fyrir ofan.

04/16/2026

  • Leave a comment
  • Share
    Enginn óður til gjöreyðingar

    Share link

in Viðtöl

All rights reserved 2026 Jane Telephonda

Some images ©

  • Log out

notes
0:00/???
  1. 1
    Gerum eitthvað algjörlega frábært 1:49
    Gerum eitthvað algjörlega frábært
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/1:49
  2. 2
    Undir sólinni 3:31
    Undir sólinni
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/3:31
  3. 3
    Mannsíld (e. „Manchild“) 3:51
    Mannsíld (e. „Manchild“)
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/3:51
  4. 4
    Transmuted Saltness 2:10
    Transmuted Saltness
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/2:10
  5. 5
    Love Will Make You Whole 3:00
    Love Will Make You Whole
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/3:00
  6. 6
    Chicken in the Sky 2:00
    Chicken in the Sky
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/2:00
  7. 7
    Life Is Love (feat. Hemúllinn) 3:32
    Life Is Love (feat. Hemúllinn)
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/3:32
  8. 8
    Weight of Flowers 2:22
    Weight of Flowers
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/2:22
  9. 9
    Come With Me 3:17
    Come With Me
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/3:17
  10. 10
    We Are the Music 5:39
    We Are the Music
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/5:39
  11. 11
    Rabbit in the Underground 2:09
    Rabbit in the Underground
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/2:09
  12. 12
    Into the Light We Go 2:47
    Into the Light We Go
    by Jane Telephonda

    Share link

    Lyrics
    In cart Not available Out of stock
    0:00/2:47
0:00/???