From the recording Kærleikskorn
Lyrics
Það er,
það var,
það verður alltaf svar
ef okkar spurningar
eru skýrt orðaðar
og meika sens.
Og þó,
að þú
sért aðeins lítið strá,
sólina skyggir á,
við munum grípa þig
ef illa fer.
Hátt
látt´í þér heyra
af fjallstindi sem þú kleifst.
Þor
sporin að marka,
í skóm sem þjóna þér dável,
svo nuddsárin
verði í lágmarki.
Og þú,
munt sjá
að okkar D N A
til næstu kynslóða
berst og við ráðum ekki neinu
um það.
Í lok,
hver veit
hvað tekur okkur við,
færumst á stærra svið
við erum kolefni
og minningar.
Hátt
látt´í þér heyra
af fjallstindi sem þú kleifst.
Þor
sporin að marka,
í skóm sem þjóna þér dável,
svo nuddsárin
verði í lágmarki.
Hátt
látt´í þér heyra
af fjallstindi sem þú kleifst.
Þor
sporin að marka,
í skóm sem þjóna þér dável,
svo nuddsárin
verði í lágmarki.
Það er,
það var,
það verður alltaf svar
ef okkar spurningar
eru skýrt orðaðar
og meika sens.
