From the recording Kærleikskorn
Lyrics
Sérhvert augnablik
á jörðu hér,
sérhver sekúnda sem storkum
örlögum
og öndum ást
á lífsins ljós,
það hleypur skammt
og hlýjar stutt
þar til við berum okkur
sólu í mót.
Líf er ást og ást mun aldrei líða,
hljómfallið er bergmál allra tíða.
Líf er ást (líf er ást),
bara ást (bara ást),
lifum stórt því einskis er að bíða.
Sérhvert blóm sem lifnar við á ný,
sérhver fugl sem flýgur hátt
mun treysta bönd
tilverunnar
við hjart' okkar.
það hleypur skammt (það hleypur skammt)
og hlýjar stutt (og hlýjar stutt)
þar til við berum okkur
só-lu í mót.
Líf er ást og ást mun aldrei líða,
hljómfallið er bergmál allra tíða.
Líf er ást (líf er ást),
bara ást (bara ást),
lifum stórt því einskis er að bíða.
Líf er ást og ást mun aldrei líða,
hljómfallið er bergmál allra tíða.
Líf er ást (líf er ást),
bara ást (bara ást),
lifum stórt því einskis er að bíða.
Sérhvert augnablik
á jörðu hér,
sérhver sekúnda sem storkum
örlögum
og öndum ást
á lífsins ljós,
það hleypur skammt
og hlýjar stutt
þar til við berum okkur
sólu í mót.
