From the recording Kærleikskorn
Lyrics
Ég skyggnist stundum inn í veröld sem er út- og innbyrðis.
Skínandi demantslaga skógarbjörn í náttfötum með ís
Er mjög hress
Og veit
Að allt
Endar vel.
Komdu með mér,
Komdu með mér í ferð
Inn í annan heim.
Safnaðu liði og
Kíktu með mér
Inn í annað tilverustig,
þar sem allt er alltaf til.
Sjálfselskudraumar þyrla upp ryki í gömlu sálarkytrunni,
(en) ryksuga kærleikans er tilbúin og æst í húsverkin.
Dragðu snúruna út
Og settu hana í gang.
Komdu með mér,
Komdu með mér í ferð
Inn í annan heim.
Safnaðu liði og
Kíktu með mér
Inn í annað tilverustig.
Komdu með mér,
Komdu með mér í ferð
Inn í annan heim.
Safnaðu liði og
Kíktu með mér
Inn í annað tilverustig,
þar sem allt er alltaf til.
