From the recording Samhengið
Lyrics
Í hjartanu
Við sólarlag
Býr von og trú
Á góðan heim
Með kærleik sem
Er endalaus
Og þegar ég held
Upp á hálendið
Fæ loks útsýnið
Yfir allt sem er
Og sé
Hvað veröldin er
Hvað vitundin sér
Þá hittumst við tvö
Í eilífðarást
Með allt okkar fólk
Í friði og ró
Í frelsinu
Og náðinni
Er ónæmi
Fyrir neikvæðni
Og smásmygli
Frá myrkrinu
Og þegar ég held
Upp á hálendið
Fæ loks útsýnið
Yfir allt sem er
Og sé
Hvað veröldin er
Hvað vitundin sér
Þá hittumst við tvö
Í eilífðarást
Með allt okkar fólk
Í friði og ró
Sem spyr hvorki um stund
Né staðsetningu
Því við erum allt
Já svo margþúsundfalt
Samt svo endalaust smá
Í alheiminum
